Sæl og blessuð!!!! Margt hefur drifið á daga mína síðan síðast... Well ég fór í geggjað matarboð upp í bústað til Binna og Gísla, fór ásamt Lísunni, þessir piltar skulduð okkur smá ;) Nú við fengum ljúffengan grillmat. Fórum í skemmtilega leiki og fylgdumst aðeins með kosningum. Kiddi Guðbr., Snorri, Eyþór, Birna og
Hansína voru þar einnig og ég hugsa að ég geti fullyrt að allir hafi skemmt sér konunglega. Nú Sunnudagurinn fór bara í lærdóm, félagsfræði, ojjjjjj, jú og fór smá í pottinn, hvað haldiði það voru frægir leikarar í sundi þau Byrnhildur og Atli Rafn, þau léku í Rent, og dóttir þeirra vildi endilega leika við mig, ég er bara alltaf að lenda í því að leika við börn frægra leikara og söngvara, nú ég fór til Mallorca þegar ég var 12 ára og lék mér þá við son þeirra Egils Ólafssonar og Tinnu Gunnlaugs, hann var sko skotinn í mér!!!! 1. árið fór í prófið á mánudagsmorgun, og gekk mér svona glimrandi vel, hélt upp á það með því að fara í pottinn í heila 5 klukkutíma, vei það var svo gaman, við fórum í blak og stelpurnar unnu einn leik 15-7 og strákarnir voru 1 fleiri... Ég er bara komin með Portúgals brúnku og vonast til að geta bætt við hana á næstu dögum. Ég er ekkert rosalega stemmd til þess að fara að læra fyrir fimleika og frjálsar... mér finnst nóg komið...
Kveðja
Ásgerður